Fréttir Flokkar Hópar Félagatal Dagskrá HSSR Velkomin á heimasíðu HSSR | Innskráning
Sjúkrahópur 7.sept. 2010  |  Katrín Möller

Fyrsti fundur sjúkrahóps verður haldinn í kvöld á M6 uppúr 8 (þannig að það stangist sem minnst á við nýliðakynninguna). Þar verður farið yfir dagskrá vetrarins og fleira.

Þeim sem hafa áhuga á að starfa með flokknum í vetur er velkomið að mæta eða senda email á katrin.moller@gmail.com

f. h. sjúkrahóps

 Katrín




Skoða bækling


Fjall kvöldsins - fyrsta ganga vetrarins 6.sept. 2010  |  Íris Lind Sæmundsdóttir

Í vetur verður, eins og í fyrra, gengið mánaðarlega á fjall í nágrenni Reykjavíkur. Fyrsta ganga vetrarins verður fimmtudaginn 9. september en þá verður gengið á Helgafell ofan Hafnarfjarðar. Fjallið er um 340 m á hæð og áætlaður uppgöngutími er 1-1,5 klst.
Nýliðar vetrarins eru sérstaklega boðnir velkomnir en gönguröðin Fjall kvöldsins er m.a. hugsuð sem kynning á fjöllum í nágrenni borgarinnar. Allir aðrir félagar sveitarinnar eru hvattir til að mæta enda mikilvægt að viðhalda þekkingu á aðstæðum á og við fjöllin í grennd við borgina.
Mæting er á Malarhöfðann kl. 17:45 og lagt verður af stað kl. 18:00. Akstur verður á vegum sveitarinnar og einkabílum ef þörf verður á.   
Munið eftir góðum skóm, hlýjum fatnaði, höfuðljósi ef til er og jafnvel smá nestisbita. Minni einnig á góða skapið sem er bráðnauðsynlegt í ferðum sem þessum :D
Sjáumst



Námskeiðið Þverun straumvatna 6.sept. 2010  |  Ólafur Jón Jónsson

Þverun straumvatna

Sunnudaginn 5. september héldu nýliðar 2 á námskeiðið Þverun straumvatna sem haldið var í blíðskaparveðri í Markarfljóti.
Farið var yfir flestar þær aðferðir og vísindi sem standa á bak við þverun straumvatna undir öruggri handleiðslu Gumma Straums og Árna Alf.
Fengu nýlðar 2 að reyna ýmsar aðferðir ss: keðjuna, hringinn, einfarann, stafkarlinn, línumanninn, flotholtið, djúpfarann og klappstýruna.
Námskeiðið lukkaðist vel í alla staði og á heimleiðinni var tekið hús á Gljúfrabúanum við höfðinglegar móttökur.



Vinnu og ljósmyndakvöld Viðbragðshóps á M6 3.sept. 2010  |  Árni Tryggvason

Malarhöfði 6

Mánudagskvöldið 6. september kl. 19:30 ætla félagar í Viðbragðshóp að fjölmenna á Malarhöfðann og taka til hendinni.

Við ætlum að ráðast í ýmis verk sem vanalega sitja á hakanum við reglubundin þrif. Þetta er sjálfsagður hluti af starfi okkar allra og margar hendur vinna létt verk. Nú ætlum við að hafa húsnæðið skínandi hreint og snyrtilegt þegar tekið verður á móti verðandi nýliðum í starfsemina kvöldið eftir.

Auðvitað eru allir velkomnir, ekki bara félagar hópsins.

Á eftir verðlaunum við okkur svo með því að flokksforinginn tekur alla þá sem áhuga hafa í smá kennslu á myndavélar og fræðslu í grunnatriðum ljósmyndunar.

Við mælum með að þið takið með ykkur myndavélarnar ykkar ef þið eigið eftir að læra eh. meira á þær og getið gert tilraunir með þær á staðnum.  

 

kv. Árni og Raggi 

 



Vilt þú stjórna Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni 3.sept. 2010  |  Ólafur Loftsson

Auglýst er eftir tveimur stjórnendum í stjórnendahóp Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Í dag eru fjórir stjórnendur en í skipulagi er gert ráð fyrir að þeir séu sex talsins. Um sjálfboðaliðastarf er að ræða. Hér er að finna upplýsingar um helstu hlutverk og verkefni stjórnenda og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda. Tekið er við umsóknum til 20. september.


Nýliðastarf haustið 2010 2.sept. 2010  |  Hlynur Skagfjörð Pálsson

Kynningarfundur um nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 7. september kl. 20.00 í hjálparsveitarhúsinu Malarhöfða 6.
Þeir sem fæddir eru á árinu 1992 eða fyrr geta tekið þátt í nýliðaþjálfun HSSR.

Sjá nánar hér: http://www.hssr.is/images/gogn/ALM_0902_1542_48_1.pdf

Ef þú hefur áhuga á að starfa í öflugri björgunarsveit kíktu þá á kynningarfundinn okkar.



  • Hjálparsveitarfótboltinn
  • Þverun straumvatna sunnudaginn 5. september
  • Fleiri en Flubbar stunda fallhlífastökk.
  • Dagskrá næsta vetur

  • Eldri fréttir >>