| Aðalsíða >> Hjálparsveit skáta í Reykjavík | ||||
|
Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR) var stofnuð árið 1932. Markmið hennar er að
vinna að björgun manna og veita hvers konar aðstoð í neyðartilvikum, þar sem þekking félaga
og tæki Hjálparsveitarinnar geta komið að notum. Sveitin er þátttakandi í almannavarnarstarfi
og er ein af aðildarsveitum
Í Hjálparsveit skáta í Reykjavík eru um 120 fullgildir félagar. Innan sveitarinnar starfa tíu flokkar og þar af eru nokkrir sérhæfðir. Þetta eru undanfarahópur, sjúkrahópur, bílaflokkur, beltaflokkur og jeppaflokkur. Stjórn sveitarinnar er skipuð sjö félögum og er kosin á aðalfundi sem er haldin í október ár hvert. þar er einnig kosið í fastar nefndir s.s. flugeldanefnd. Í eigu sveitarinnar eru 3 fjallabílar til fólksflutninga og snjóbíll. Aðsetur Hjálparsveitarinnar er í 1.200 m2 húsnæði að Malarhöfða 6 í Reykjavík. Hérna á vefnum er að finna upplýsinga um marga þá starfsemi sem hjálparsveitin starfar við.
|
||||
|
||||





