Fréttir Flokkar Hópar Félagatal Dagskrá HSSR Velkomin á heimasíðu HSSR | Innskráning

Lög Hjálparsveitar skáta í Reykjavík

(Samþykkt á aðalfundi HSSR. 30. október 2007)



I. Kafli - Nafn, heimili, markmið og einkenni

1. gr. Nafn og aðsetur
Sveitin heitir Hjálparsveit skáta í Reykjavík, skammstafað HSSR Heimili HSSR og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr. Markmið
Tilgangur HSSR er að vinna að björgun manna og veita hvers konar aðstoð í neyðartilfellum, þar sem þekking og tæki HSSR geta komið að notum og taka þátt í skipulögðu almannavarnastarfi.

3. gr. Aðild að samtökum
HSSR er aðili að Skátasambandi Reykjavíkur. Einnig er HSSR aðili að Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

4. gr. Einkenni
a) Merki sveitarinnar er hringur og inni í honum jafnarma kross ásamt nafni sveitarinnar. Merkið er grænt á gulum fleti. Búningar, fánar, veifur og annað þess háttar skal vera í samræmi við merki sveitarinnar og reglugerð þar að lútandi.
b) Skírteini HSSR eru gefin út til fullgildra félaga. Á þau skal skrá: Nafn, kennitölu, heimilisfang, blóðflokk skírteinishafa og gildistíma.


II. Kafli - Réttindi og skyldur sveitarfélaga

5. gr. Fullgildir félagar
Fullgildur félagi í HSSR telst sá, sem:
a) Starfað hefur tilsettan tíma í nýliðaflokki og hlotið þar nauðsynlega þjálfun.
b) Undirritað hefur eiðstaf sveitarinnar.
c) Hefur skírteini HSSR.
d) Uppfyllir lágmarkskröfur um mætingar og þjálfun samkvæmt reglugerð þar að lútandi.

6. gr. Réttindi
Réttindi fullgilds sveitarfélaga eru:
a) Taka þátt í starfsemi sveitarinnar, svo sem leitum, æfingum og fræðslustarfsemi.
b) Bera einkenni sveitarinnar við störf í þágu hennar.
c) Vera tryggður við störf í þágu hennar.

7. gr. Skyldur
Skyldur fullgilds sveitarfélaga eru:
a) Halda lög þau og reglur, sem aðalfundur, sveitarfundur eða stjórnendur HSSR kunna að setja.

b) Taka þátt í þeirri starfsemi, sem stjórnendur sveitarinnar kunna að fela honum, koma til þeirrar starfsemi stundvíslega, svo og tilkynna tímanlega stjórnendum sveitarinnar forföll, ef hann getur ekki komið á tilsettum tíma.
c) Bera einkenni sveitarinnar við störf í þágu hennar.


III. Kafli - Fundir, stjórn, endurskoðendur og kosningar

8. gr. Fundir
Starfsár HSSR er frá 1. september til 31. ágúst. Halda skal minnst tvo sveitarfundi og einn aðalfund á hverju ári. Til aðalfunda og sveitarfunda skal boða skriflega með viku fyrirvara og auglýsingu í húsakynnum sveitarinnar. Með fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins. Rétt til setu á fundum HSSR með málfrelsi og tillögurétti hafa fullgildir félagar, aukafélagar, nýliðar og gestir fundarboðenda en aðeins fullgildir félagar hafa atkvæðisrétt. Aukafélagar eru ekki boðaðir sérstaklega. Æski 20 eða fleiri fullgildir félagar sveitarinnar eftir sveitarfundi, ber stjórn hennar að boða til hans á löglegan hátt þegar í stað. Á fundum HSSR gilda almenn fundarsköp og í lok fundar skulu fundarstjóri og fundarritari undirrita fundargerð.

a) Reglulega sveitarfundi skal halda í mars og september ár hvert. Verkefni þeirra eru:
1. Sveitarforingi skipar fundarstjóra og fundarritara.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Stjórnin leggur fram skýrslu um starfsemi sveitarinnar frá síðasta reglulegum sveitarfundi.
4. Stjórnin leggur fram starfsáætlun til næsta reglulegs sveitarfundar.
5. Önnur mál.

b) Aðrir sveitarfundir skulu haldnir svo oft, sem þörf krefur.

c) Aðalfundur HSSR skal haldinn fyrir lok nóvember ár hvert. Hann hefur æðsta vald í málefnum sveitarinnar og tekur þær ákvarðanir um starfsemi hennar, sem þörf er á. Hann er löglegur, ef löglega er til hans boðað og eigi færri en þriðjungur fullgildra félaga sækir hann. Með fundarboði skulu fylgja breytingatillögur við lög sveitarinnar, skýrsla stjórnar og listi yfir þá félaga, sem fullgildir teljast. Fáist ekki nægileg fundarsókn í fyrstu tilraun, skal boða til annars fundar með sama hætti og er hann löglegur, hversu fáir, sem þá koma.

Verkefni aðalfundar HSSR:
1. Sveitarforingi setur fundinn og stýrir kosningu fundarstjóra.
2. Fundarstjóri skipar fundarritara.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu um starf sveitarinnar.
5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga HSSR
6. Skýrslur nefnda.
7. Fjalla skal um breytingatillögur við lög HSSR
8. Kosningar
a) sveitarforingja
b) meðstjórnenda
c) endurskoðanda
d) félagslegsendurskoðanda
e) uppstillingarnefndar.

9. Önnur mál.

9. gr. Stjórn
Stjórn sveitarinnar skal skipuð sjö mönnum, sveitarforingja og sex meðstjórnendum. Eru þeir kosnir á aðalfundi, bundinni kosningu með einföldum meirihluta atkvæða. Kjörtímabil sveitarforingja er eitt ár en meðstjórnenda tvö ár. Engan má kjósa í stjórn nema hann sé fullgildur félagi í sveitinni. Stjórnin kýs úr sínum hópi fyrsta og annan aðstoðarsveitarforingja, gjaldkera og ritara.

Sveitarforingi boðar til stjórnarfunda með tveggja sólarhringa fyrirvara og stjórnar þeim. Stjórnarfundur skal haldinn mánaðarlega eða oftar, ef þörf krefur og er lögmætur, ef fjórir stjórnarmenn sitja hann. Úrslitum mála ræður afl atkvæða. Allar fundargerðir stjórnarinnar skulu ritaðar í gerðabók og skrifa viðstaddir stjórnarmenn undir þær.

Stjórnin boðar til aðal- og sveitarfunda, undirbýr fundarmálefni, framkvæmir fundarályktanir, annast störf milli funda, leggur fyrir aðalfund til úrskurðar endurskoðaða reikninga sveitarinnar fyrir næsta starfsár á undan, hefur eftirlit með sjóðum sveitarinnar og öðrum eignum, gætir hagsmuna hennar í öllum greinum og getur leitað aðstoðar landslaga og réttar í málefnum hennar, ef þörf krefur.

10. gr. Endurskoðendur
Endurskoðun reikninga hafa með höndum tveir menn, sem aðalfundur HSSR kýs. Annar þeirra er félagslegur endurskoðandi en hinn skal vera löggiltur endurskoðandi. Þeir eru kosnir til eins árs í senn og mega ekki vera í stjórn HSSR. Endurskoðendur skulu sannprófa, að reikningum sveitarinnar beri saman við bækur hennar, enda eiga þeir aðgang að öllum bókum og skjölum, hvenær sem er. Stjórninni er skylt að veita endurskoðendum nauðsynlegar upplýsingar um fjármál sveitarinnar.

Endurskoðendur bera ábyrgð fyrir aðalfundi. Reikningsár sveitarinnar fylgir starfsári sveitarinnar. Reikningsskilum ber að ljúka svo tímanlega, að endurskoðun geti farið fram áður en aðalfundur er haldinn. Á aðalfundi skal ávallt leggja fram endurskoðaða reikninga fyrir liðið ár og taka ákvarðanir um þá. Nú fellir aðalfundur tillögu um samþykki reikninga og getur hann þá ákveðið, að yfirskoðun skuli fara fram eftir þeim reglum, sem fundurinn setur. Að þeirri yfirskoðun lokinni, skal boða til framhaldsaðalfundar, sem tekur ákvörðun um reikningana.

11. gr. Rekstrarsjóður
HSSR á rekstrarsjóð. Tilgangur sjóðsins er að tryggja HSSR fastar tekjur til frambúðar ásamt því að vera varasjóður til að mæta áföllum sem HSSR kann að verða fyrir.

Aðalfundur HSSR ákveður framlag í sjóðinn og greiðslur úr honum nema að stjórn HSSR er heimilt að ráðstafa allt að 8% af uppfærðum höfuðstól sjóðsins eins og hann er í upphafi rekstrarárs til fjárfestinga eða reksturs á rekstrarárinu án samþykkis aðalfundar. Veðsetning sjóðsins og lántaka úr honum er ekki heimil nema með samþykki aðalfundar HSSR.

Rekstrarsjóð HSSR skal ávaxta hjá löggiltum banka eða verðbréfafyrirtæki og skal leggja ávöxtun við höfuðstól hans. Stjórn HSSR skipar 3 manna sjóðstjórn sem hefur það hlutverk að móta fjárfestingastefnu sjóðsins, semja við fjárvörsluaðila og fylgjast með fjárfestingum og ávöxtun hans. Að minnsta kosti einn stjórnarmanna sjóðsins skal jafnframt vera í stjórn HSSR. Reikningsskil og endurskoðun á rekstrarsjóði HSSR skal lúta sömu reglum og gilda fyrir reikninga HSSR.

12. gr. Uppstillingarnefnd
Uppstillingarnefnd skal kosin á aðalfundi. Kjósa skal formann og tvo aðra nefndarmenn. Hlutverk nefndarinnar er að tryggja, að framboð berist til allra embætta HSSR, sem kosið er í á aðalfundi.


IV. Kafli - Skipulag

13. gr. Flokkar
HSSR starfar í flokkum samkvæmt reglugerð, sem stjórn setur. Stjórnin skipar foringja flokkanna og eru þeir ábyrgir gagnvart henni.

14. gr. Inntökuskilyrði
Hver sá, sem æskir inngöngu í HSSR, skal útbúa umsókn á þar til gert eyðublað og senda stjórn sveitarinnar. Stjórnin tekur umsóknirnar til úrskurðar og tilkynnir hún umsækjendum svo fljótt sem verða má niðurstöður sínar. Umsækjendur skulu vera fullra 18 ára. Þó er stjórn HSSR heimilt að ákveða annan lágmarksaldur, ef ástæða þykir til.

15 gr. Nýliðar
Nýir félagar hljóta undirbúningsþjálfun í nýliðaflokkum, þar sem þeir skulu starfa minnst 18 mánuði og ljúka tilskilinni þjálfun. Ef nýliði hefur á þessum tíma sýnt áhuga á starfi sveitarinnar og stjórn hennar telur hann hæfan og æskilegan félaga, þá gefst honum tækifæri til að undirrita eiðstaf sveitarinnar á næsta aðalfundi eða reglulegum sveitarfundi og telst þá fullgildur félagi í HSSR Stjórn er heimilt að stytta þjálfunartíma hafi nýliði starfað með öðrum björgunarsveitum.

16. gr. Aukafélagar
Í reglugerð um starfsemi flokka HSSR skulu koma fram þær kröfur, sem gerðar eru til félaganna um þjálfun og æfingasókn. Uppfylli félagi ekki þessar kröfur, skal hann settur á aukafélagaskrá, eftir að hafa fengið aðvörun og tækifæri til að bæta sig. Félagar geta sjálfir óskað eftir að fara á aukafélagaskrá, ef um tímabundin forföll er að ræða, svo sem vegna atvinnu, náms eða annarra slíkra orsaka. Eftir slík forföll eiga menn þess kost að fá sín fyrri réttindi í sveitinni sem fullgildir félagar en skulu áður gangast undir hæfnispróf, telji stjórn HSSR það nauðsynlegt.

Aukafélagar eiga rétt til setu á fundum HSSR, sbr. 8. gr. þessara laga en eigi þarf að boða þá sérstaklega. Stjórn HSSR er heimilt að kveðja til aukafélaga, ef þess gerist þörf að hennar mati við lausn þeirra verkefna, sem sveitin vinnur að hverju sinni.

17. gr. Styrktarfélagar
Stjórninni er heimilt að gefa velunnurum sveitarinnar kost á að gerast styrktarfélagar.

18. gr. Brottvísun
Brot á lögum þessum eða reglum sveitarinnar getur varðað brottvísun úr sveitinni að mati stjórnar. Vísa má slíkri niðurstöðu til úrskurðar sveitarfundar.

19. gr. Félagsslit
Samþykki tveggja þriðju hluta fullgildra sveitarfélaga þarf til að hætta starfrækslu sveitarinnar. Skulu þá allar eignir hennar afhentar Slysavarnafélaginu Landsbjörg til vörslu, þar til stofnuð verður ný sveit í Reykjavík með sama tilgangi. Nú verður ekki stofnuð ný sveit innan tíu ára frá sveitarslitum, skal þá stofna sjóð, er hafi þann tilgang að styrkja björgunarstörf.

20. gr. Lagabreytingar
Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi HSSR og öðlast lagabreytingar þegar gildi, ef tveir þriðju hlutar atkvæðisbærra fundarmanna greiða þeim atkvæði. Breytingatillögur skulu hafa borist skriflega til ritara HSSR fyrir 5. september og skulu þær ræddar á septemberfundi HSSR og kynntar félagsmönnum þar.

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi HSSR 30. október 2007